157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

leit að olíu og gasi.

63. mál
[21:36]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ég fagna mjög þessari þingsályktunartillögu Miðflokksins sem komin er fram. Olíuleit á Drekasvæðinu og vinna í kringum það er svo sem ekkert nýtt fyrir þann sem hér stendur. Fyrir ellefu árum síðan ákvað Eykon Energy að velja Fjarðabyggð og Múlaþing til að þjónusta olíuleit félagsins á Drekasvæðinu. Þá var sá sem hér stendur formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar og í mörg ár vorum við búin að vinna vinnu til að bjóða í og keppa um hvaða sveitarfélög yrðu í rauninni þjónustusveitarfélög við olíuleit. Við höfðum gríðarlega mikla trú á þessu verkefni. Hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson rakti hér af hverju flosnaði síðan upp úr því og óþarfi að fara meira yfir það. En þetta var margra ára undirbúningsvinna og við fórum m.a. í kynnisferðir til Stafangurs og Aberdeen, sem eru olíuborgir og olíuhafnir sem umbreyttust með tilkomu olíunnar, til að kynna okkur starfsemina í kringum olíuleit og þjónustu við olíuiðnaðinn. Það er ótrúlegt, sérstaklega eins og með Stafangur, að sjá umbreytinguna sem varð frá 1965, 1969 kemur Ekofisk, á Stafangri þegar olían kom og hvaða samfélag Stafangur er í dag.

Fjarðabyggð kom aftur við sögu í mars síðastliðnum þegar sveitarfélagið ályktaði og sendi áskorun til stjórnvalda um að fara í áframhaldandi olíuleit og gefa út leyfi til olíuleitar. Hæstv. umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson, í viðtali við RÚV 19. mars, tók nú þessa áskorun ekki mjög alvarlega og sagði, með leyfi forseta: „Það er ekkert á dagskrá að fara aftur í einhver olíuleitarútboð á Drekasvæðinu.“

Ég skil þessa hvatningu og ég styð hana því ef við horfum bara á hvernig heimurinn er í dag, þrátt fyrir mikla uppbyggingu á grænum orkukostum um allan heim, sólarorku og vindmyllum og öðru, þá er það bara þannig að okkar stærsta verkefni er að fara út kolanotkun. Það er númer eitt, tvö og þrjú. Næstu ár og áratugi munu olía og gas vera þeir orkugjafar sem munu leysa kolin af hólmi frekar en aðrir orkugjafar. Auðvitað er grænasta orkan sem hægt er að fá kjarnorka, svona af því sem hægt er að byggja, en þar hafa sum ríki tekið þá ákvörðun að fasa út kjarnorku, eins og Þýskaland, og lent í stórkostlegum vandræðum með það og byggðu síðan orkuþörf sína á gasi frá Rússlandi, vindmyllum og öðru.

Ég er sammála þessari þingsályktunartillögu í öllum meginatriðum en um eitt er ég þó ósammála og það er ákveðið útfærsluatriði. Ég tel að það sé ekki þörf á sérstöku ríkisolíufélagi eins og kemur fram í þingsályktunartillögunni. Í viðtali við Morgunblaðið benti hagfræðingurinn og fjárfestirinn Heiðar Guðjónsson á að það þurfi ekkert sérstakt ríkisolíufélag því að lögin sem snúa að Drekasvæðinu séu Íslendingum mjög hagfelld og séu alveg skýr varðandi olíuleit. Ríkið tekur helminginn af öllum rekstrarhagnaði. Þannig er það. Það er núna þannig að ríkið mun taka 50% af þeim rekstrarhagnaði sem verður til við olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Það er bundið í leyfið og það er með fyrirmynd frá Noregi. En við þurfum ekkert sérstakt ríkisolíufélag til þess eins og Heiðar Guðjónsson bendir á. Ég er sammála Heiðari af því að ríkið þarf ekki að leggja út neitt fé, hvorki fyrir leit né vinnslu. Þetta er algjörlega áhættulaust fyrir íslenska ríkið. Það eina sem það þarf að gera er að gefa út olíuleitarleyfið.

Við getum síðan velt því fyrir okkur, ef þetta eru þau verðmæti sem menn eru að vonast til að séu á Drekasvæðinu, að þá þurfum við náttúrlega að fara að huga að því að vera með einhvers konar sjóð eins og frændur okkar í Noregi til að stjórnmálamenn eyði þessu ekki öllu saman jafnóðum og þetta komi inn. Við byggjum upp þjóðarsjóð fyrir komandi kynslóðir en ég held að við þurfum ekki ríkisolíufélag, ég er sammála Heiðari Guðjónssyni í því, en það er útfærsluatriði. Það er ekki stóra málið í þessari þingsályktunartillögu. Stóra málið í þessari tillögu er að skora á íslensk stjórnvöld að sýna velvilja og jákvæðni og hvetja þau til þess að aftur verði hafin olíuleit á Drekasvæðinu. Það styð ég heils hugar. Ríkisolíufélag er útfærsluatriði, ég held að við þurfum ekki á því að halda, en þessa þingsályktunartillögu styð ég heils hugar.