leit að olíu og gasi.
Virðulegur forseti. Ég skil áhyggjur hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar yfir því ef menn ætla að fara að senda inn umsóknir til umhverfisráðuneytisins um að fá að leita að olíu. En þá kemur aftur á móti að þeim í rauninni mikilvæga punkti í allri þessari umræðu að ef það er ekki pólitískur vilji, pólitísk yfirlýst stefna að íslensk stjórnvöld séu jákvæð og opin fyrir því að hér hefjist olíuleit, þá verður aldrei stofnað ríkisolíufélag. Ég skil því mjög vel áhyggjurnar og átta mig á því að í þessari þingsályktunartillögu er verið í rauninni að taka þetta út úr ráðuneytinu til að búa til ákveðið form svo hægt sé að taka á móti umsóknum. Það er líka talað um það í þingsályktunartillögunni að byggja upp íslenska þekkingu á olíuiðnaðinum og við þurfum að gera það. En er það í ríkisolíufélagi? Ég held að það sé a.m.k. einnar messu virði að tala við þá sem eru líklegir og þekkja vel til hvort þetta geti verið í raun sá vendipunktur, hvort þetta geti ráðið úrslitum um það hvort menn sæki um leyfi til olíuleitar. Eykon Energy sótti um leyfi til olíuleitar og þá var ekkert ríkisolíufélag, þannig að ég velti því fyrir mér hvort þetta sé nauðsynlegt, en ég skil áhyggjur hv. þingmanns.