leit að olíu og gasi.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir hans svar. Auðvitað er það þannig að í fullkomnum heimi myndum við vilja hætta að nota jarðefnaeldsneyti ef fram kæmu einhverjir aðrir grænir orkumiðlar sem væru raunverulegt svar við orkuframleiðslunni, af því að orkunotkunin er með þeim hætti að kol eru meira en þriðjungur orkunotkunar heimsins í dag. Það er það sem við verðum að horfa á. Við getum reynt að leysa þetta með því að byggja fleiri kjarnorkuver og það er verið að byggja fleiri kjarnorkuver, sem er græn orkulausn, 75% af orku Frakklands er græn og það er af því að þeir hafa haldið sínum kjarnorkuverum. Svíar eru með kjarnorkuver, Finnar eru með kjarnorkuver, þetta er ein af þessum grænu lausnum. Hins vegar velti ég fyrir mér þessu tímabili, þessum árum, jafnvel einhverjum áratugum sem mun taka okkur að koma upp grænum orkukostum í stað jarðefnaeldsneytis eða kola. Við verðum einhvern veginn að brúa það bil og það er þá betra að brúa það með orkukostum sem menga 30–70% minna heldur en kol, fyrir utan alla aðra mengun sem af kolunum hlýst, fremur en að keyra ástandið óbreytt eins og það er.
Í rauninni er það því þannig að við viljum öll fasa út jarðefnaeldsneytið. En það eru áratugir þangað til að hér verður komin ný tækni, jafnvel í köldum samruna eða hvað sem það verður. Ég hef fulla trú á því að mannkynið muni finna lausn á þessum málum eins og öllum öðrum hingað til. Einhvern tímann þegar við fórum í milljarð (Forseti hringir.) eða ég man ekki hvað við vorum komin í, 2 milljarða, var sagt að við værum orðin nógu mörg, erum orðin 8 milljarðar í dag. Mannshugurinn á sér engin takmörk. Ég hef fulla trú á því að svo verði áfram. (Forseti hringir.) Er ekki hv. þingmaður sammála þessu?