157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

endurnýjun ökuskírteina eftir 60 ára aldur.

7. mál
[22:40]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna. Eins og framsögumaður getur ímyndað sér er ég nokkuð sammála þessari þingsályktunartillögu, enda hefur sú sem hér stendur lagt fram frumvarp þess efnis að það þurfi ekki að endurnýja ökuskírteini jafn ört. Ég vona að hv. þm. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir íhugi að samþykkja það frumvarp sem ég hef lagt fram því að þá getur þetta orðið fyrr að lögum heldur en þingsályktunartillagan og nýst fólki. En það sem ég velti fyrir mér er hvað sé ólíkt í þessari þingsályktunartillögu. Mér sýnist það helst vera að það er sérstaklega talað um Svíþjóð hérna en jafnframt er talað um að gera eins og í nágrannalöndum okkar. Almenn skírteini þarf að endurnýja á 15 ára fresti á Íslandi. Það þarf að endurnýja á 15 ára fresti líka í Danmörku, Finnlandi og Noregi. Svíþjóð hins vegar sker sig úr en þar þarf að endurnýja á tíu ára fresti. Þannig að fyrsta spurningin er: Er það þá vilji hv. þingmanns að við förum niður í tíu ára endurnýjunartímabil fyrir alla þannig að það þurfi að endurnýja örar hjá yngra fólki eða er það ekki aðalatriðið? Og væri hv. þingmaður til í að skoða það að leggja til breytingar í meðförum þingsins við frumvarp mitt þannig að þetta verði þannig að hv. þingmaður sé tilbúinn að treysta sér til að samþykkja frumvarpið sem ég er nú þegar búin að leggja fram núna og á síðasta þingi?