endurnýjun ökuskírteina eftir 60 ára aldur.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir hennar andsvar og ég fagna því í rauninni að við getum átt þetta samtal hér undir andsvörum því að það vill svo til að ég held að bæði þessi mál, frá hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur og frá mér, hafi einhvern veginn komið inn í kerfið á sama tíma og ég held að við höfum báðar orðið jafn undrandi á máli hvor annarrar því að þau voru náttúrlega mjög sambærileg.
En ég á svolítið sögu í þessum geira. Ég hef kennt í Ökuskólanum í Mjódd frá 2006, umferðarsálfræði, í góðum hópi samstarfsfólks þar þannig að það er svolítill undirbúningur að þessu máli með þann hóp að baki sem hefur hlakkað til að sjá þessa þingsályktunartillögu flutta. Þess vegna er það nú þannig að ég hélt mínu striki og ég bara fagna því að hv. þingmaður gerði slíkt hið sama.
Þetta eru tvö góð mál. Þau eru kannski ekki nákvæmlega eins en við erum samt báðar að horfa til nágrannalanda. Og já, ég horfi sérstaklega til Svíþjóðar í mínu máli. Ég held að það yrði náttúrlega mjög skrýtið — af því að þetta er í rauninni með það markmið aðallega að létta á eldri borgurum hvað þetta varðar og losa þá við þessa byrði að þurfa að endurnýja svona ört, svo að ég tali nú ekki um kostnaðinn við ýmiss konar vottorð. Þannig að þessi mál eru bæði með sama markmið og við skulum bara sjá hvernig þessu fram heldur í nefndum. Ég vona að að lokum verði árangurinn og útkoman bara akkúrat sú sem við viljum, sem verður best og til hagsmuna og góðs fyrir eldra fólk.
Ég vona að þetta hafi svona nokkurn veginn svarað þessum spurningum en hér er ekki um neina keppni að ræða, ekki alla vega af minni hálfu svo að það sé sagt.