endurnýjun ökuskírteina eftir 60 ára aldur.
Forseti. Ég held að það sé alveg skýrt frá mínum bæjardyrum séð að aðalatriðið hjá mér er að þetta megi verða að lögum og koma til virkni sem fyrst. Þannig að það er nú bara það sem ég lít á. Hvernig sem við gerum það þá held ég, í nafni samvinnu, að við ættum að gera það þannig að mestar líkur verði á að þetta fari í gegn. Hins vegar fékk ég ekki svar við spurningu minni varðandi þessa auknu tíðni sem hv. þingmaður virðist leggja hér til, að við förum úr því að endurnýja á 15 ára fresti niður í tíu ára frest. Er þetta eitthvað sem hv. þingmaður áttaði sig á og leggur til? Og þá kannski spyr ég: Af hverju vill hún auka tíðni þannig að það verði örari endurnýjanir hjá yngra fólki? Er það bara til þess að eldra fólk sé á sama stað og hún vill ekki fara með það lengra en tíu ár, eða hver er hugsunin að fara með okkur í tíu ár þegar við erum með 15 ár, öll nágrannalöndin nema Svíþjóð eru með 15 ár og mörg önnur lönd líka? Það er nú kannski það sem ég myndi vilja heyra upp á að ná samstöðu, af því að mér sýnist annars að við séum komnar ansi nálægt því að geta orðið sammála. Annað held ég að ég sé ekki með því að ég er annars að mestu leyti sammála þessari þingsályktunartillögu og vona að við náum góðri samvinnu með þetta.