157. löggjafarþing — 7. fundur,  17. sept. 2025.

sjúkraskrár.

69. mál
[15:49]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir hennar framsögu. Mig langar til að ítreka þær athugasemdir sem við þingmenn Sjálfstæðisflokksins höfum komið á framfæri í þessari umræðu áður og í hv. velferðarnefnd. Við erum sammála því að það þarf að byggja upp trausta og gagnadrifna heilbrigðisþjónustu og en erum ekki alveg sammála um leiðirnar að því og teljum að þarna sé verið að leggja dálítið óhóflegar og einhliða kvaðir á veitendur. Við höfum bent á það að landlæknir fái með þessu mjög vítt og mikið vald til gagnaöflunar og okkur finnst það ekki alveg nógu skorðað eða niðurnjörvað innan hvaða ramma eigi að vinna.

Við höfum einnig áhyggjur af kostnaði sem lagður er á veitendur og það kom líka fram í umræðum, athugasemdum og umsögnum í nefndinni að það eru margir sem hafa þær áhyggjur. Því langar mig að fá það aðeins fram frá hæstv. ráðherra hvort hún sé algerlega sannfærð um að þrátt fyrir þessar ábendingar, sem hafa ítrekað komið fram, sé verið að ná þessum markmiðum með hinum eina sanna rétta hætti. Hvort það sé einhver möguleiki á því að vinna málið þannig áfram að það dragi úr byrðum og hvort það sé hægt að vinna þetta þannig að það sé hægt að útfæra það með skýrari heimildum og meiri vörn fyrir veitendur.