157. löggjafarþing — 7. fundur,  17. sept. 2025.

sjúkraskrár.

69. mál
[15:51]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir athugasemdina. Í þessu frumvarpi er ekki verið að gefa landlækni heimild til meiri gagnaöflunar og það er ekki verið að leggja íþyngjandi skilyrði á veitendur heilbrigðisþjónustu. Það átti hins vegar við í öðru frumvarpi sem var á fyrra þingi, þannig að ég velti fyrir mér hvort þingmaðurinn hafi slegið þessu saman, en ef ekki, að þingmaðurinn skýri þá betur nákvæmlega í hverju athugasemdirnar eru fólgnar.