157. löggjafarþing — 7. fundur,  17. sept. 2025.

sjúkraskrár.

69. mál
[15:52]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það má vera að það sé eitthvað að slá þarna saman í málum sem heita það sama. Mig langar til að vísa til þess að við munum auðvitað taka þetta til efnislegrar umræðu aftur í velferðarnefndinni og ef þarna er að slá saman málum þá biðst ég afsökunar á því. Í viðkomandi máli sem um ræðir, gagnaöflun, sem ég kom inn á hérna áðan, þá hafa athugasemdirnar verið mjög skýrar í umsögnum.