157. löggjafarþing — 7. fundur, 17. sept. 2025.
sjúkraskrár.
69. mál
Frú forseti. Ég tel næsta víst að þarna hafi verið átt við frumvarp til breytinga á lögum um landlækni og lýðheilsu sem samþykkt var á síðasta þingi. Þar var þingmaðurinn með akkúrat þessar athugasemdir. Þar var vissulega verið að útvíkka heimildir landlæknis til að kalla eftir gögnum frá einkareknum aðilum en það var að öðru leyti ekki verið að leggja á frekari kvaðir um skráningu gagna.