lyfjalög og lækningatæki.
Virðulegur forseti. Ég hjó eftir því að hæstv. ráðherra sagðist vera að mæla öðru sinni fyrir þessu máli. Ég hygg að það hafi verið mismæli. Hæstv. ráðherra var að endurflytja nokkur mál en svo sannarlega ekki þetta mál. Þetta mál var síðast flutt á þarsíðasta þingi og þá gegndi hæstv. heilbrigðisráðherra öðrum störfum sem í sjálfu sér tengjast mjög efni þessa máls.
Mig langaði í ljósi þess að hæstv. ráðherra virðist kannski ekki hafa sett sitt mark á þetta frumvarp, því að ég skil það þannig að þetta sé endurflutt núna eiginlega í óbreyttri mynd frá þarsíðasta þingi, frá síðasta kjörtímabili — þá var ég svo sem sjálf í sömu stöðu og hæstv. ráðherra að ég sat ekki sjálf á þinginu og var ekki við þá umræðu. Ég geng auðvitað út frá því að hæstv. ráðherra sé sátt við frumvarpið eins og það er en mig langar að vita hvort hæstv. ráðherra hefur einhvern veginn kafað aðeins dýpra ofan í þessa löggjöf með vísan til fyrri reynslu og starfa og kannski einkum og sér í lagi líka með vísan til þess að þessi lög voru samin í rauninni í þeim stormi sem Covid-faraldurinn olli hér. Ég er bara svona að velta því fyrir mér hvort hæstv. ráðherra sé alveg sannfærð um þennan texta sem er hér kynntur í dag frá síðasta kjörtímabili, hvort hann mætti ekki við einhverjum breytingum í ljósi þess tíma sem liðið hefur og þegar menn hafa reynsluna og geta metið þetta nú þegar rykið er sest.