lyfjalög og lækningatæki.
Virðulegur forseti. Ég læt ekki hjá líða að veita andsvar öðru sinni í þessu máli sem ég hélt að væri annað mál og fell hér í flokk með hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur sem mögulega kann að hafa ruglast líka á einhverjum málum. Ég vil þó taka það fram að okkur er kannski vorkunn vegna þess að í velferðarnefnd þar sem við báðar sitjum, hv. þm. Rósa Guðbjartsdóttir og ég, hafa verið til umfjöllunar mál með svipuðum nöfnum, það er að segja lækningatæki og sjúkraskrár, nokkur mál með þessum heitum. Ég hef í sjálfu sér ekki athugasemdir á þessum vettvangi hér í 1. umræðu um þetta tiltekna mál sem hæstv. ráðherra var að flytja framsögu um en það rifjast þó upp fyrir mér að ég held ég hafi nú samt verið með einhverjar athugasemdir við meðferð málsins í nefndinni og ég mun svo sannarlega rifja þær upp þegar þar að kemur en bíð spennt eftir umfjöllun um næsta dagskrármál.