lyfjalög og lækningatæki.
Frú forseti. Já, ég skil spenninginn við það að fara að fjalla um sóttvarnalögin og ég hef vissulega samúð með þingmönnum um að sum frumvörpin eru keimlík en þeim fer fækkandi því ég legg áherslu á að reyna að sameina frumvörp þar sem það á við. En eins og ég sagði áðan þá er þetta hrein innleiðing og það verður vonandi mjög sjaldgæft að þessum lögum þurfi að beita því að þau eiga einungis við ef uppi er bráð ógn við lýðheilsu. Þá er sem sagt skilgreint hvaða lyf og lækningatæki eru mikilvæg og safnað upplýsingum um þau til gagns fyrir okkur hér innan lands en sömuleiðis fyrir Evrópu. Þetta er mjög ofarlega á baugi, ég var á ráðherrafundi heilbrigðisráðherra Evrópuríkja bara í gær og þar er heilbrigðisviðbúnaður og aðgangur að lyfjum mjög ofarlega á baugi.