sóttvarnalög.
Virðulegur forseti. Ég endurflyt hér frumvarp til nýrra heildarlaga um sóttvarnir sem ætlað er að leysa af hólmi sóttvarnalög nr. 19/1997. Frumvarpið er nú lagt fyrir Alþingi í fimmta sinn. Þann 18. júní 2021 skipaði þáverandi heilbrigðisráðherra starfshóp sem falið var að skrifa drög að frumvarpi til heildarlaga um sóttvarnir og skilaði hópurinn þáverandi heilbrigðisráðherra drögum að frumvarpi þann 1. febrúar 2022. Sú sem hér stendur er því þriðji heilbrigðisráðherrann sem að málum kemur. Starfshópinn skipuðu fulltrúar helstu aðila sem hlutverki hafa að gegna þegar kemur að opinberum sóttvarnaráðstöfunum. Í starfshópnum sátu aðilar frá heilbrigðisráðuneytinu, embætti landlæknis, dómsmálaráðuneytinu, sóttvarnalækni, Landspítala, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, sóttvarnaráði og embætti ríkislögreglustjóra.
Frumvarpið sem ég mæli fyrir hér í dag er samið af fyrrnefndum starfshópi en á því hafa síðan orðið breytingar í meðförum þingsins. Frumvarpið var lagt fram á 152. löggjafarþingi og fór þá í gegnum eina umræðu á Alþingi en náði ekki fram að ganga. Við umræðuna komu fram sjónarmið um frekari aðkomu þings hvað varðar ákvarðanir sem skerða athafnafrelsi fólks á grundvelli sóttvarnalaga. Enn fremur komu fram ólík sjónarmið um þá aðila sem skipa skuli í farsóttanefnd. Frumvarpið var endurflutt á 153. löggjafarþingi með minni háttar breytingum frá fyrri framlagningu og voru þar líka komnar fram umsagnir Persónuverndar. Enn fremur var ákvæði um skipan farsóttanefndar breytt, m.a. í ljósi umsagnar sóttvarnalæknis um þörf á fleiri fagaðilum með sérþekkingu á smitsjúkdómum og faraldsfræði í nefndinni, og umsagnar Sjúkrahússins á Akureyri um að í farsóttanefnd sætu fulltrúar af landsbyggðinni. Frumvarpið var enn fremur lagt fram á 154. og 155. löggjafarþingi með minni háttar breytingu en náði ekki fram að ganga og er því lagt fram nú í fimmta sinn.
Frú forseti. Með nýjum lögum er ætlunin að skýra betur þau úrræði sem sóttvarnalæknir og heilbrigðisráðherra geta gripið til vegna hættu á farsóttum til eða frá Íslandi innan lands og vegna hættu á útbreiðslu smits frá einstaklingum. Markmið lagasetningar er að vernda almannaheill, þ.e. samfélagið og líf og heilsu einstaklinga gegn smitsjúkdómum og annarri vá sem lögin taka til. Einnig er verið að skýra þær heimildir sem stjórnvöld hafa til opinberra sóttvarnaráðstafana í samræmi við kröfur lögmætisreglunnar og lagaáskilnaðarreglna stjórnarskrárinnar og jafnframt að einfalda og skýra stjórnsýslu sóttvarna. Gildandi sóttvarnalög eru frá árinu 1997. Töluverðar breytingar voru gerðar á lögunum árið 2021 þar sem nauðsynlegt þótti að skýra ýmis ákvæði laganna um opinberar sóttvarnaráðstafanir í ljósi fenginnar reynslu af heimsfaraldri Covid-19. Við endurskoðunina var sérstaklega horft til álitsgerðar Páls Hreinssonar, sem hann vann að beiðni stjórnvalda og fjallar um valdheimildir sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra til opinberra sóttvarnaráðstafana í ljósi meginreglna stjórnsýsluréttar og mannréttindaákvæða. Þar var einnig fjallað um réttindi borgaranna við aðstæður eins og einangrun og sóttkví og kveðið á um aðkomu dómstóla ef þörf krefði. Við þessa yfirferð var bent á að þörf væri á heildarskoðun laganna þegar sæi fyrir endann á heimsfaraldrinum. Almennt má segja að gildandi sóttvarnalög hafi reynst vel í faraldrinum en nú hefur gefist færi á að líta yfir farinn veg, einfalda og skýra ákveðna þætti í stjórnsýslu sóttvarna og setja heimildir til sóttvarnaráðstafana fram með einfaldari hætti.
Ég ætla nú að rekja helstu atriði frumvarpsins og sjónarmið að baki þeim. Í fyrsta lagi er lagt til að sett verði sérstakt markmiðsákvæði í sóttvarnalög sem og sérstakt ákvæði um þá sjúkdóma sem lögin taka til. Lögð er til ákveðin stigskipting sjúkdóma þar sem í fyrsta lagi eru tilteknir smitsjúkdómar, í öðru lagi alvarlegir sjúkdómar og í þriðja lagi samfélagslega hættulegir sjúkdómar. Lagt er til að heimildir stjórnvalda til sóttvarnaráðstafana skuli taka mið af framangreindri stigskiptingu, sem er sambærilegt því sem gildir í Danmörku. Þannig megi einungis grípa til veigamestu ráðstafananna þegar samfélagslega hættulegir sjúkdómar eru á ferðinni.
Í öðru lagi er frumvarpinu ætlað að tryggja þau réttindi sem varin eru af stjórnarskrá með því að kveða skýrt á um til hvaða ráðstafana megi grípa til að skerða réttindi, í hvaða tilvikum og með tilliti til meðalhófssjónarmiða. Þannig er markmiðið að tryggja enn betur að slíkar skerðingar styðjist við viðhlítandi lagaheimild og séu ekki framkvæmdar nema í þágu almannahagsmuna eða til verndar heilsu eða réttindum annarra. Það er mikilvægt að fram komi að heimildir sóttvarnalaga til skerðingar á réttindum samkvæmt ákvæðum stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu hafa þann tilgang að tryggja líf og heilsu fólks sem eru veigamestu verndarhagsmunir samfélagsins sem njóta verndar stjórnarskrár og mannréttindasáttmálans. Jafnframt hefur verið talið að á stjórnvöldum hvíli frumkvæðisskylda að stjórnlögum til að bregðast við til verndar lífi og heilsu fólks ef ljóst er að bein og fyrirsjáanleg ógn steðji að því.
Í fyrrnefndri álitsgerð Páls Hreinssonar um heimildir til sóttvarnaráðstafana segir m.a. að opinberar sóttvarnaráðstafanir geti takmarkað mannréttindi sem vernduð eru af mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar. Í sumum tilvikum sé nægilegt að slíkar takmarkanir styðjist við sett lög svo þær teljist heimilar, en í öðrum tilvikum verði þær að vera í þágu almannahagsmuna til verndar heilsu eða vegna réttinda annarra svo að þær séu heimilar.
Að lokum segir að þeir almannahagsmunir að verjast farsóttum til verndar lífi og heilsu manna teljist falla undir þær undanþágur sem kveðið er á um í mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar. Þar er m.a. vísað til 1. mgr. 67. gr. um frelsissviptingu, einnig takmarkanir á friðhelgi einkalífs heimilis og fjölskyldna sem fram koma í 71. gr. og takmarkanir á atvinnufrelsi sem koma fram í 75. gr. stjórnarskrárinnar. Sama megi segja um ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.
Í þriðja lagi eru lagðar til breytingar á stjórnsýslu sóttvarna. Þannig er lagt til að sóttvarnalæknir verði skipaður af ráðherra líkt og landlæknir og aðrir forstöðumenn stofnana og að ábyrgð hans á framkvæmd sóttvarna heyri beint undir yfirstjórn ráðherra. Þótt sóttvarnalæknir hafi aðsetur hjá og sóttvarnasvið sé eitt af sviðum landlæknis heyrir sóttvarnalæknir beint undir ráðherra þegar hann vinnur samkvæmt sóttvarnalögum og þannig er þetta í gildandi lögum. Enn fremur verði sett á laggirnar nýtt fjölskipað stjórnvald, þ.e. sérstök farsóttanefnd. Hlutverk hennar verði að gera tillögur til ráðherra um opinberar sóttvarnaráðstafanir vegna samfélagslegra hættulegra sjúkdóma og tillögu um að skilgreina sjúkdóma samkvæmt stigskiptingu laganna. Þannig verði það ekki ábyrgð sóttvarnalæknis eins að ráða heilbrigðisráðherra heilt heldur sjö manna farsóttanefndar sem kallað getur til tvo fulltrúa að auki. Samkvæmt frumvarpinu verður sóttvarnaráð lagt niður og verkefni ráðsins færð til sóttvarnalæknis og farsóttanefndar. Enn fremur er lögð til sérstök heimild sóttvarnalæknis til að kveðja sér til ráðgjafar sérfræðinga vegna þeirra verkefna sem falla undir hlutverk sóttvarnalæknis.
Í fjórða lagi eru ýmsar breytingar gerðar frá gildandi lögum á þeim kafla frumvarpsins sem fjallar um opinberar sóttvarnaráðstafanir. Einstök ákvæði eru brotin upp og framsetning þeirra einfölduð. Jafnframt eru settar tilteknar skorður við tímalengd opinberra sóttvarnaráðstafana og kveðið á um að gæta meðalhófs og jafnræðis og taka tillit til annarra verndarhagsmuna, svo sem félagslegra og efnahagslegra hagsmuna og hagsmuna barna og hagsmuna sem njóta verndar stjórnarskrár og mannréttindasamninga sem Ísland er aðili að. Síðast en ekki síst er lagt til að aðkoma og eftirlitshlutverk Alþingis að opinberum sóttvarnaráðstöfunum verði styrkt og lagt er til að heilbrigðisráðherra sé skylt að bera tillögur að sóttvarnaráðstöfunum undir ríkisstjórn. Loks að viðurlagaákvæði laganna verði uppfært í samræmi við löggjafarþróun síðari ára.
Frú forseti. Mig langar að ræða sérstaklega lítt árennilega skilgreiningu á orðinu inngrip í orðskýringum, sem er skilgreint í lögunum sem götun eða skurður í húð eða ísetning áhalds eða framandi efnis í líkamann eða rannsókn á líkamsholi. Með inngripi er ekki átt við læknisrannsókn á eyra, nefi og munni, hitamælingu með eyrna-, munn- eða hörundshitamæli eða hitamyndatöku, heilbrigðisskoðun, hlustun, ytri þreifingu, sjónuspeglun, töku þvag-, saur- og munnvatnssýnis utan frá, mælingu blóðþrýstings utan frá, eða hjartalínurit. Þessi skilgreining, sem er víðtæk, á að mestu rætur í alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni og er í gildandi lögum. Ástæðan fyrir þessari skilgreiningu á inngripi í lögunum er sú að almennt eiga sóttvarnaráðstafanir gagnvart einstaklingum ekki að fela í sér inngrip, enda væri það umtalsverð skerðing á persónufrelsi einstaklinga. Það á að leitast við að beita aðgerðum án inngripa eins og strok t.d. úr munnholi er. Í 2. mgr. 13. gr. núgildandi laga segir m.a. að í reglugerð sé ráðherra heimilt að kveða á um að við komu eða brottför og eftir ástæðum er varða lýðheilsu megi krefjast þess að ferðamenn gangist undir heilbrigðisskoðun sem er eins lítið ífarandi og unnt er til að ná settu lýðheilsumarkmiði. Ekki skal beita inngripum nema gagnvart þeim sem grunur leikur á að gætu hafa smitast. Þetta þýðir að það er ekki heimilt að beita inngripum nema þegar grunur beinist að því að viðkomandi sé smitaður af samfélagslega hættulegum sjúkdómi.
Virðulegi forseti. Eins og ég sagði áðan tel ég að gildandi lög hafi almennt reynst okkur vel í heimsfaraldri Covid-19 og það hefur reynt á flesta þætti laganna. En eins og ég gat um áðan voru tilteknar breytingar sem þóttu mikilvægar og nauðsynlegar gerðar á þeim þegar árið 2021. Það má öllum vera ljóst af fenginni reynslu hvað beiting sóttvarnalaga getur haft víðtæk áhrif á daglegt lífs fólksins í landinu og á raunar alla þætti samfélagsins, innviði þess, atvinnulíf, menningarlíf og svo mætti áfram telja. Við skulum hafa hugfast hver markmið sóttvarnalaga eru og hve mikilvægt er að þau þjóni tilgangi sínum þegar á reynir, þ.e. að vernda almannaheill, samfélagið og líf og heilsu þeirra einstaklinga sem samfélagið byggja. Löggjöf um sóttvarnir snertir á öllum þáttum samfélagsins þegar á reynir og beiting laganna gengur í mörgum tilvikum nærri stjórnarskrárvörðum mannréttindum okkar. Hlutverk okkar hér á Alþingi er að gera löggjöfina sem best úr garði til að tryggja að markmiðum laganna verði sem best náð en jafnframt að ekki sé gengið nær sjúkraskrárvörðum mannréttindum en nauðsyn krefur. Það er ekki spurning hvort heldur hvenær næsti heimsfaraldur ríður yfir og þeirri sem hér stendur þætti verra ef ekki væri búið að færa lögin til betri vegar þegar að því kemur.
Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir meginatriðum frumvarpsins og leyfi ég mér að leggja til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. velferðarnefndar og 2. umræðu.