157. löggjafarþing — 7. fundur,  17. sept. 2025.

sóttvarnalög.

80. mál
[16:22]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir athugasemdirnar. Samið í stormi, auðvitað var stormurinn þegar lögunum var breytt árið 2021 en þegar þetta er samið þá er rykið farið að setjast en fyrir lá álitsgerð Páls Hreinssonar, sem vissulega var að hluta til búið að taka tillit til, og það lá líka fyrir skýrsla sem ríkisstjórnin lét gera um áfallaþol í Covid, þannig að það er bara mjög margt sem liggur til grundvallar. Ég hafði ekki fylgt þessu frumvarpi eftir. Vissulega var fulltrúi frá embætti landlæknis og auðvitað frá sóttvarnalækni í hópnum en landlæknir lá ekkert yfir því. Ég hafði ekki fylgt frumvarpinu í gegnum þingið þannig að ég settist við að lesa það eftir að ég tók við öðru hvoru megin við síðustu áramót og ég verð að segja að mér fannst frumvarpið gott. Sú sem hér stendur á auðvitað auðvelt með að máta aðstæður inn í frumvarpið og við skulum ekki gleyma því að þegar Covid byrjaði í fyrstu bylgju, þá var það verulega skæður sjúkdómur. Við getum alveg ímyndað okkur annan sjúkdóm, sá sjúkdómur sem ég myndi hræðast mest væri ebóla. Ég var sjálf í teymi sem þjálfaði fyrir það ef ebóla bærist til landsins árið 2015 þannig að ég tel að það verði að liggja fyrir vandað frumvarp. Mér finnst sérstaklega þessi stigskipting góð þannig að þessar mestu aðgerðir eiga aðeins við þegar um samfélagslega hættulegan sjúkdóm er að ræða og það er tiltekið að það skuli taka tillit til mjög margra skilyrða.