157. löggjafarþing — 7. fundur,  17. sept. 2025.

sóttvarnalög.

80. mál
[16:24]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tek undir með hæstv. ráðherra að það er mikilvægt að það liggi fyrir skýrt afmarkaður lagabálkur sem kveður á um heimildir stjórnvalda til að grípa til aðgerða á tímum eins og þeim sem við kynntumst fyrir nokkrum árum. Hins vegar velti ég því fyrir mér og það kemur auðvitað í ljós við þinglega meðferð hvort einmitt skýrleikinn sé nægilega mikill í þessu frumvarpi. Ég tek eftir því að hér er lagt til að sóttvarnanefnd verði lögð niður og það taki til starfa ný nefnd, farsóttanefnd. Það sem ég man einna helst eftir að hafi verið gagnrýnt vegna nefndarinnar á sínum tíma er að hún hafi ekki haft heildaryfirsýn yfir einmitt samfélagslega þætti þegar kom að þessum aðgerðum. Í nefndina hafi vantað t.d. lögfræðinga, lögmenn, hagfræðinga, einhverja sem hefðu yfirsýn yfir efnahagsmálin líka því að það er vissulega stór hluti af lýðfræðilegri heilsu í hverju samfélagi, efnahagsmálin. Þannig að ég velti því fyrir mér hvort hæstv. ráðherra telji möguleika á því að það þurfi aðeins að útvíkka nefnd sem þessa.