sóttvarnalög.
Frú forseti. Þetta voru góðar athugasemdir. Það er þannig að sóttvarnanefnd var lögð niður. Í staðinn er það farsóttanefnd sem gefur heilbrigðisráðherra ráðleggingar varðandi sóttvarnaráðstafanir. Þar situr fagfólk en nefndin getur kallað til tvo aðila að auki eins og hagfræðing eða sérfræðing í málefnum barna eða hvað sem uppi væri hverju sinni. En það er líka í lögunum núna að heilbrigðisráðherra verði skylt að bera mál upp í ríkisstjórn þar sem auðvitað er hægt að hafa áhrif á og meta inn efnahagslegar afleiðingar o.s.frv. Ég bendi á það að sóttvarnalæknir benti á þetta í Covid, í upphafi annarrar bylgju, að ríkisstjórnin og heilbrigðisráðherra yrðu að taka tillit eins og til efnahagsmála en sóttvarnalæknir var náttúrlega ekki sérfræðingur í þeim.