sóttvarnalög.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. heilbrigðisráðherra kærlega fyrir að flytja og leggja fram þetta mál. Það er mjög mikilvægt að við lærum af reynslunni og þegar þessi sóttvarnalög skiptu allt í einu rosa miklu máli í lífi okkar allra í heimsfaraldrinum Covid-19. Ég vil einnig þakka henni fyrir að frumvarpið sé lagt fram með þeim breytingum sem velferðarnefnd gerði á 153. löggjafarþingi í tíð síðustu ríkisstjórnar eftir athugasemdir m.a. frá þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Ég velti því fyrir mér hvers vegna var ákveðið að taka út ákvæði er varðar aðkomu Alþingis sem sneri að því að ráðherra myndi þurfa að leggja fram frumvarp ef samfélagslega hættulegur sjúkdómur og sóttvarnaaðgerðir á þeim grunni skyldu vera við lýði í lengur en átta vikur ef ég man rétt.