sóttvarnalög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Tryggva Mássyni fyrir athugasemdina og ég er innilega sammála því að við þurfum að læra af reynslunni. Það er mikið um aðkomu Alþingis í þessu frumvarpi, sérstaklega þegar kemur að velferðarnefnd; að henni séu kynntar sóttvarnaráðstafanir um leið og þær eru gerðar. Það er ekki verið að fela Alþingi ákvarðanavald um sóttvarnaráðstafanir því það gæti stangast á við eftirlitshlutverk Alþingis og stjórnarskrána þar sem segir að ráðherrar beri ábyrgð.
Þetta var ígrundað mjög vandlega í hópnum og fékk hópurinn til sín margs konar sérfræðinga á þessu sviði. Það er nú samt þarna að ef sóttvarnaráðstafanir dragast á langinn þá geti ráðherra komið með frumvarp. Það er bara mjög margt varðandi aðkomu Alþingis sem að er hér tiltekið og þetta er auðvitað afrakstur vinnunnar um áfallaþol þar sem sérstaklega var fundið að því hvað Alþingi hefði komið lítið að málum. En Alþingi hefur þó margs konar ráð til að veita ráðherranum aðhald, eins og með fyrirspurnum, skýrslubeiðnum og umræðum á þinginu og í nefndinni, fyrir utan rannsóknarnefnd og slíkt. Þarna er verið að hugsa um að aðkoma Alþingis að setningu sóttvarnaráðstafana og eftirlitshlutverk þess stangist ekki á.