157. löggjafarþing — 7. fundur,  17. sept. 2025.

sóttvarnalög.

80. mál
[16:30]
Horfa

Tryggvi Másson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir svarið. Ég skil þessi sjónarmið og þegar ég vann hér sem framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins í tíð síðustu ríkisstjórnar þá áttu þessar umræður sér stað, sem eru mjög mikilvægar því að aðgreining framkvæmdarvalds og löggjafarvalds er mjög mikilvæg, eins og er kennt í grunnskólum. Það er líka mikilvægt að við svona aðstæður, sem eru mjög óvenjulegar, þá fari það ekki milli mála að Alþingi styðji áframhaldandi aðgerðir og ráðherrann áfram til góðra verka. Mig langar þess vegna að spyrja í síðara andsvari hvort ráðherrann myndi setja sig upp á móti því ef velferðarnefnd myndi bæta við ákvæði þar sem ráðherrann þurfi að fá áframhaldandi grænt ljós frá Alþingi fyrir sóttvarnaaðgerðum þegar það er ástand vegna samfélagslega hættulegs sjúkdóms.