sóttvarnalög.
Frú forseti. Auðvitað þyrfti maður að skoða hvernig slík tillaga liti út. Ég styð algerlega meiri aðkomu Alþingis, að því gefnu sem ég tók fram áðan, og það er ekkert óeðlilegt við það að ef svona ástand dregst á langinn að þingið komi meira og meira að. Það vann með okkur í faraldrinum hvað við erum lítil stjórnsýsla og hvaða hlutir gengu hratt því að það væri auðvitað ekki gott að tefja mikið inni á þingi ef um mjög bráða ógn eins og ebólusýkingu væri að ræða. Ég get alveg stutt það að þegar að svona ástand dregst á langinn að þingið komi að málinu í æ meira mæli.