157. löggjafarþing — 7. fundur,  17. sept. 2025.

sóttvarnalög.

80. mál
[16:33]
Horfa

Tryggvi Másson (S):

Virðulegur forseti. Líkt og kom fram áðan þá vil ég þakka ráðherranum kærlega fyrir að flytja þetta mál, sérlega með þeim breytingum sem urðu á málinu á 153. löggjafarþingi, m.a. fyrir tilstuðlan gagnrýni sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði á þeim tíma. Ég ætla því ekki að endurtaka þær athugasemdir sem við vorum að ræða rétt áðan. Mig langar hins vegar að ræða hugmyndafræðina þarna að baki og hvers vegna þingflokkur Sjálfstæðisflokksins telur mikilvægt að tryggja aðkomu Alþingis með meiri hætti heldur en að það verði kallað til fundar velferðarnefndar. Eins og við upplifðum öll í heimsfaraldrinum Covid-19 þá var gripið til mjög íþyngjandi aðgerða fyrir frelsi fólks sem framan af var mjög skiljanlegt þegar við vissum lítið um sjúkdóminn og áhrif hans á fólk og hvernig hann dreifðist. En eftir því sem leið á og meira að segja árin liðu, þeim mun meira óþol varð fyrir aðgerðunum í samfélaginu. Eðli málsins samkvæmt, eftir því sem við vitum meira um sjúkdóminn, því betur þarf að rökstyðja ákvarðanirnar. Þess vegna tel ég mjög mikilvægt að tryggja það að spilin séu lögð á borðið, að Alþingi sé meðvitað um allt. Þess vegna er gott og mikilvægt að velferðarnefnd komi að málum. En ef það er tilfinning þeirra sem vinna á Alþingi að svona aðgerðir séu að tapa trausti í samfélaginu þá tel ég mjög mikilvægt, ef svona aðgerðir dragast mjög á langinn, að það sé fengin staðfesting frá Alþingi um að það treysti ráðherra áfram og sóttvarnaráði í þessu tilfelli að fara með svona mikil völd til að takmarka frelsi fólks. Þess vegna er líka gott að þessi stigmögnun í flokkun sjúkdóms, þ.e. hversu alvarlegur sjúkdómurinn sé, er í frumvarpinu. Þess vegna held ég að það sé mikilvægt fyrir velferðarnefnd að bæta því inn í frumvarpið að þegar sjúkdómur er samfélagslega hættulegur og það þarf að beita sóttvarnaráðstöfunum í lengri tíma þá komi Alþingi inn og veiti þeim sem fara með þau völd að takmarka rétt fólks til að hittast o.s.frv., áframhaldandi traustsyfirlýsingu í einhverju formi sem felur í sér það að alþingismenn ýti á græna takkann. Það tel ég vera gott fyrir lýðræðið og það er gott fyrir stjórnkerfið og framkvæmdarvaldið að hafa þá traustsyfirlýsingu í farteskinu þegar haldið er áfram og er, líkt og hæstv. ráðherra segir, í senn aðhald fyrir ráðherrann og sóttvarnaráð í þessari vinnu.

Fyrrverandi hæstv. heilbrigðisráðherra Willum Þór Þórsson sagði hér í pontu þegar hann flutti sambærilegt mál að hann teldi það ekki vera sitt hlutverk að kveða á um aðkomu Alþingis í þessu frumvarpi en var opinn fyrir því að aðkoma Alþingis yrði tryggð. Mér heyrist það á ráðherranum að hún sé viljug til að vera í góðu samstarfi við velferðarnefnd við mögulega útfærslu á þessu, sem er afar mikilvægt. Og ég vil bara brýna nefndina að taka þetta til skoðunar í sínum verkum.