sóttvarnalög.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir að koma fram með þetta frumvarp til nýrra heildarlaga vegna sóttvarnalaga. Það er auðvitað mikilvægt að við séum að ræða þetta frumvarp hér í dag og þær breytingar og þá uppfærslu á lögunum sem um er að ræða og það er búið að vera skemmtilegt að fylgjast með og hlusta á umræðurnar í dag hjá hv. þingmönnum sem hafa tjáð sig um þetta. Það er auðvitað mjög brýnt og mikilvægt að lög séu skýr þegar nauðsynlegt er að beita ákvæðum slíkra laga og í raun og veru kannski óheppilegt ef þörf væri á lagabreytingum seint, að það sé verið að breyta lögum þegar þarf að beita þeim eins og þegar faraldur stendur yfir. Það er því mjög gott að við séum á þessum tímapunkti að fara yfir þetta og er auðvitað bara brýnt fyrir okkur að nýta þá reynslu sem búum yfir núna í kjölfar heimsfaraldurs og þeirra aðgerða sem samfélagið hefur gengið í gegnum.
Mig langaði að ítreka að það er alltaf gott að horfa til þess sem nágrannaþjóðir okkar hafa verið að gera að undanförnu í samræmi við sambærileg lög í þeirra löndum. Þar sjáum við að það er verið að breyta lögum og uppfæra þau miðað við þá reynslu sem fengist hefur við slíkar aðstæður. Þær aðgerðir sem getur þurft að grípa til í nútímasamfélagi eru auðvitað að mörgu leyti mjög frábrugðnar því sem kannski hefur þurft að gera á árum áður eða fyrir kannski öld eða svo. Þannig að þetta er mikilvægt mál, eins og ég segi, gott að grípa til og fara að ræða það og ég hlakka til þess að að taka þátt í þeirri umræðu í hv. velferðarnefnd þar sem ég á sæti. Ég held að það sé mjög mikilvægt að vinna þetta mál vel eins og hefur komið fram hér í dag og ég geri fastlega ráð fyrir því að við munum fá góðar umsagnir í þessu máli eins og hefur komið fram áður. En ég verð jafnframt að taka undir orð hv. þm. Sigríðar Á. Andersen að það er auðvitað mikilvægt að við vöndum til verka og gefum okkur tíma í nefndinni til að fara yfir þetta. Það er mjög mikilvægt í svona málum að lagatextinn sé skýr og það myndist ekki einhver ómöguleiki í stöðu mála þegar verið er að beita lögunum eða þarf að grípa til aðgerða.
Ég hlakka til að vinna þetta mál í velferðarnefnd. Þetta er stórt og mikilvægt mál og við munum eflaust fá góðan tíma og gott samstarf í nefndinni til að fjalla um þetta. Ég hlakka til þess að vinna með málið.