sóttvarnalög.
Virðulegur forseti. Af því að ég náði ekki að að fara efnislega í allt frumvarpið, og ég ætla ekki að gera það hérna, þá ætla ég aðeins að segja nokkur orð um 1. gr. frumvarpsins af því að hún er nokkurt nýmæli. Það er nýmæli að í sóttvarnalögum sé einhvers konar markmiðssetning. Það hefur borið á góma í ræðum annarra þingmanna að það sé nauðsynlegt að heimildir í sóttvarnalögum séu skýrar þegar grípa á til aðgerða, og ég tek undir það og ég held að allir séu sammála um það. En þá vil ég bara nefna að það er óheppilegt, ekki bara í þessu frumvarpi heldur í lögum almennt, að sett séu svona almenn markmiðsákvæði, almennar markmiðsgreinar. Hér í 1. gr. er kveðið á um að það að markmið laga þessara sé að vernda almannaheill, þ.e. samfélagið og líf og heilsu einstaklinga gegn smitsjúkdómum og annarri vá sem lögin taka til, m.a. með því að fyrirbyggja sjúkdóm, útrýma honum eða bæla niður, takmarka útbreiðslu sjúkdóms innan lands og fyrirbyggja að sjúkdómur berist til landsins eða frá landinu. Ekkert svona ákvæði er í núgildandi lögum. En þetta var svolítið viðkvæðið hjá stjórnmálamönnunum sem vildu grípa til aðgerða og töldu sig hafa allar heimildir til þess vegna þess, eins og menn sögðu: Ríkisstjórnin hefur bara jákvæðar skyldur, ríkisstjórnin þarf að bregðast við til að vernda líf og heilsu manna og þá er allt undir.
Það er ekki þannig, virðulegur forseti. Það hefur enginn jákvæðar skyldur til þess að vernda líf og heilsu annarra með þeim hætti að hann geti gert hvað sem er. Það þarf að vega inn og taka tillit til meðalhófsreglu og jafnræðisreglu og fleiri reglna. Það er erfitt að gera það þegar menn ætla að hanga í einhverju svona markmiðsákvæði. Ég held að þetta frumvarp hefði ekki verið neitt verra, þvert á móti held ég að það hefði verið betra, ef þetta ákvæði væri bara tekið út, 1. gr., þessi markmiðssetning, af því að hún hefur engin jákvæð áhrif. Það er ekki hægt að binda nein réttindi eða skyldur við þessa grein.
Ég vara við því og ég vil nefna þetta af því að það var mikið haft orð á þessu í Covid, að menn hefðu jákvæða skyldu til að vernda líf og heilsu manna. En það þýðir ekki að hægt sé að gera hvað sem er. Það þýðir ekki að það sé hægt að henda fólki í sóttvarnahús bara af því að það kom frá útlöndum, eins og gert var. Tugir manna voru lokaðir inni í marga daga í einhverju húsi, fangelsaðir án dóms og laga til að vernda líf og heilsu. Það var viðkvæðið: Því miður hefur þessi frasi ratað inn í frumvarpið og ég tel að við ættum í hv. velferðarnefnd sérstaklega að skoða hvort það gæti ekki einmitt flækt málin, flækt ákvarðanatöku ef til þess kemur að þurfa að taka erfiðar ákvarðanir, að hafa svona ákvæði í lögunum.