157. löggjafarþing — 7. fundur,  17. sept. 2025.

sóttvarnalög.

80. mál
[17:09]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir umræðuna sem hefur verið ágæt. Hér var rætt um hvernig óþol myndaðist í samfélaginu eftir því sem leið á faraldur Covid-19. Vissulega var það þannig að faraldurinn var langalvarlegastur í byrjun. Við skulum ekki gleyma hvernig gekk í Kína þar sem fólk dó á götum úti eða á Norður-Ítalíu, en síðan er það sem betur fer eðli slíkra faraldra að veiran veiklast eftir því sem á líður og þá auðvitað kemur að því að það þarf að minnka aðgerðir. En einn af liðunum í því að við þurfum ekki að grípa til harðra sóttvarnaaðgerða er að byggja upp heilbrigðiskerfið því að það var á stundum þannig að það þurfti að fletja kúrfuna svo heilbrigðiskerfið réði við og gæti sinnt sjúklingum með botnlangabólgu og kransæðasjúkdóma og því um líkt. Það náðist t.d. ekki í Kína í upphafi faraldursins og fólk dó úr öðrum sjúkdómum.

Síðan var hér rætt um aðkomu Alþingis. Ég var búin að ræða það í andsvari en það er auðvitað ekkert því til fyrirstöðu þegar liðið er á faraldur og ljóst að það þarf að hafa takmarkanir í gildi í lengri tíma að ráðherra fari fram með frumvarp og Alþingi getur auðvitað líka sett slík lög. Ég ætla bara að benda hv. þingmönnum á skýrsluna Áfallastjórnun stjórnvalda í Covid-19 faraldrinum þar sem sérstaklega er um þetta fjallað, á bls. 214–216. En við skulum líka muna að í faraldri Covid-19 var reglum breytt mjög títt þannig að það gæti verið tvíeggja sverð að binda ákvarðanir í lög.

Hér var líka rætt um áhrif á efnahagslífið og ég nefndi það að sóttvarnalæknir, sem var auðvitað sá sem ráðlagði heilbrigðisráðherra sem svo tók ákvarðanir, benti mjög snemma á að það þyrfti að taka tillit til annarra atriða eins og efnahagslegra. Sóttvarnalæknir er auðvitað ekki sérfræðingur á því sviði og ekki eðlilegt að krefjast þess að hann komi með slíkar ráðleggingar. En það var gerð skýrsla af norrænu ráðherranefndinni þar sem kom fram að áhrif faraldursins á íslenska hagkerfið voru meiri hér í samanburði við hin Norðurlöndin, aðallega vegna stærðar ferðaþjónustunnar sem var jú 40% af okkar útflutningstekjum. Áhrifin voru fyrst og fremst vegna aðgerða annars staðar því að við lokuðum aldrei landamærum hér á Íslandi.

Ég ætla líka aðeins að nefna það að lokum að það er ekkert nýtt undir sólinni. Hv. þm. Kristján Þórður Snæbjarnarson talaði um að kannski hefðum við ekki gert eins fyrir öld en það var bara nákvæmlega þannig. Ég hvet hv. þingmenn til að lesa bókina sem kom út um spænsku veikina og þar eru nákvæmlega sömu ráðstafanir taldar upp.

Ég ætla að taka undir með öllum hv. þingmönnum um að það er mikilvægt að vanda vel til verka og þakka þingmanninum fyrir að taka eftir því að það er komið snemma inn með þetta frumvarp einmitt til að hv. velferðarnefnd fái tíma til að fjalla um það. Það er einmitt ástæðan fyrir því að það var ekki komið fram með þetta frumvarp á okkar stutta fyrra þingi. Það er auðvitað hlutverk hv. Alþingis að gera sóttvarnalöggjöfina sem besta úr garði og ég treysti hv. velferðarnefnd vel til þess og vona að þetta frumvarp, þó að því verði breytt, verði að lögum, því eins og ég sagði í mínum inngangi þá er ekki spurning hvort heldur hvenær næsti heimsfaraldur verður. Vonandi er nú langt í það en það væri slæmt ef ekki væri búið að uppfæra lögin. Að lokum óska ég hv. velferðarnefnd velfarnaðar og hvet þingmenn til að lesa annars vegar álitsgerð Páls Hreinssonar og hins vegar áðurnefnda skýrslu um áfallastjórnun sem er mjög ítarleg og fjallar um margt það sem hér hefur verið nefnt, þannig að ég held að ég ljúki máli mínu hér.