svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra fyrir svarið. Í áðurnefndu svari ráðherra við fyrirspurn hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur segir að endurskoðun á skipulagslögum sé ekki til skoðunar að svo stöddu en þó hafi ráðherra í hyggju að ráðast í slíka endurskoðun með það fyrir augum að liðka fyrir breytingum á vaxtamörkum þegar sveitarfélög komast ekki að sameiginlegri niðurstöðu
Þetta er kjarni málsins og hér þarf skýrleika, hæstv. ráðherra. Eins og fram kom í vikunni, í máli hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur, býr fólk hvorki í skýrslum né skipulagstillögum. Þess vegna er brýnt að ráðherra grípi strax til aðgerða sem hún hyggst ráðast í. Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra: Hvað nákvæmlega hefur hún í hyggju í þessum efnum? Hvernig sér hún fyrir sér að liðka fyrir breytingum á vaxtamörkum eins og hún hefur boðað í takt við stefnu Flokks fólksins? Er það skoðun ráðherra að neitunarvald eins sveitarfélags víki fyrir ákvörðun aukins meiri hluta þegar ágreiningur rís? (Forseti hringir.) Og mun ráðherra beita sér fyrir því að þessi breyting verði unnin með Alþingi á þessu þingi þannig að sveitarfélög fái aukið sjálfstæði í því augnamiði að ráða bug á húsnæðisvandanum?