157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins.

[10:39]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Ég veit ekki hvernig hv. þingmaður getur fundið út óskýrleika í mínu fyrra svari. Ég var algerlega skýr hvað það varðar. Mér hugnast ekki svona samkrull þar sem eitt sveitarfélag getur í rauninni ráðið afdrifum annars hvað lýtur að vaxtarmörkum þannig að við erum virkilega að vinna í málinu og mun ég fylgja eftir því svari sem hv. þm. Rósa Guðbjartsdóttir fékk frá mér á sínum tíma, þó að einhver annar hafi reyndar skrifað fyrir mig, en það er önnur saga. Hv. þingmaður þekkir það væntanlega. En ég var sátt við svarið vegna þess að það var í rauninni algjörlega í takti við mína skoðun og okkar í Flokki fólksins hvað þessu viðvíkur. Sveitarfélögunum er tryggt sjálfstæði í stjórnarskrá. Þetta er náttúrlega samningur sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og þau verða þá kannski líka að sýna sjálfstæði sitt í því að stokka það upp. Það gæti líka verið til bóta fyrir okkur öll hin. En jú, í sátt og samlyndi munum við vinna þetta saman, hv. þingmaður.