157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

áherslur ríkisstjórnarinnar.

[10:41]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Ég hef oft dáðst að hæstv. félagsmálaráðherra, formanni Flokks fólksins, í baráttu sinni og flokksins fyrir bættum kjörum þeirra sem minna hafa og einnig fyrir að taka í raun og veru upp hanskann fyrir þá sem þurfa að berjast við eitthvert ójafnræði. Þess vegna hefur það vakið nokkra furðu mína að Flokkur fólksins, flokkur hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra Ingu Sæland, hefur í áherslum nýrrar ríkisstjórnar verið að leggjast gegn landsbyggðinni, verið að samþykkja að slá af átta sýslumenn á landsbyggðinni, að slá af heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga og þar með eina átta, níu framkvæmdastjóra á landsbyggðinni, að leggja niður héraðsdómstólana og þar með æðstu starfsmenn dómstólanna á landsbyggðinni. Þarna erum við komin í einhverja 30 af þeim embættismönnum ríkisins sem eru með æðstu stöður og sýslumenn auðvitað efstir þar.

Það tók þó steininn úr þegar hæstv. mennta- og barnamálaráðherra tilkynnti í gær öllum framhaldsskólum landsins að nú skyldu þeir lagðir niður, ekki hver og einn heldur skólameistararnir settir undir einhvers konar millistjórnsýslustig, fjögur til sex, það er óljóst hvað verður, án nokkurs samráðs. Þá er bætt við einhverjum 15–20 af æðstu embættismönnum ríkisins og erum við þá komin í einhverjar 45 af þeim stöðum sem ríkið heldur á. Þetta gerist á sömu dögum og okkur er gert ljóst að hlutfall opinberra starfa er hæst hérna á höfuðborgarsvæðinu og æðstu embættismenn ríkisins starfa allir hér. Þetta hefur vakið furðu mína og mig langar til að spyrja hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra hverju þetta eiginlega sæti.