157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

áherslur ríkisstjórnarinnar.

[10:43]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir þessa stórfurðulegu fyrirspurn því að hún heyrir annars vegar undir mennta- og barnamálaráðherra og hins vegar undir dómsmálaráðherra. Í ljósi þess að hv. þingmaður hefur mikla þingreynslu, líka sem ráðherra, þá veit hann mætavel að þegar mál eru á frumstigi og verið er að kynna þau þá eru þau yfir höfuð að taka miklum breytingum í meðförum þingsins. Í lok dags þá er það Alþingi Íslendinga sem á síðasta orðið um öll mál sem hingað koma inn. Svo gætir ákveðins misskilnings um það sem við vorum að fá kynningu á einmitt frá hæstv. mennta- og barnamálaráðherra í gær, um þessar fyrirhuguðu breytingar á framhaldsskólastiginu. Þær eru aðallega þær að skólameistarar verða skólameistarar, skólastjórar verða skólastjórar — ég átta mig ekki alveg á því hvað hv. þingmaður á við. Kerfisbreytingin felst aðallega í því að létta í rauninni á stjórnsýslu fjármála skólanna hvers um sig og koma með miðlæga grunna út um kjördæmin og líka á höfuðborgarsvæðinu.

Hvað lýtur að sýslumönnunum og öðru slíku þá bara bið ég hv. þingmann vinsamlega að beina slíkum fyrirspurnum til hæstv. dómsmálaráðherra því að það er, eins og annað hér, á frumstigum og í vinnslu og kemur fyrir þing og fastanefndir og þar verður í rauninni lokaafgreiðsla mála og hér í þingsal væntanlega. Þannig að ég segi: Mér þætti líka vænt um ef hv. þingmaður kæmi bara með eitthvað af þeim málum sem heyra beint undir mig sem er félags- og húsnæðismálaráðherra. Ég er með öldrunarþjónustu, nýbúin að koma fram nýju almannatryggingakerfi. 1. september síðastliðinn, er með skipulagsvald og ýmislegt annað og þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila. Þarna er ég náttúrlega á heimavelli, hv. þingmaður, og þætti vænt um að slíkar fyrirspurnir bærust til mín.