áherslur ríkisstjórnarinnar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og er ánægður með þau sinnaskipti sem hafa orðið frá því síðastliðinn vetur, að ráðherra geri sér grein fyrir því að það er Alþingi sem ræður. Hæstv. ráðherra er auðvitað einn af þremur oddvitum ríkisstjórnarinnar og leggur þar af leiðandi línurnar í áherslum ríkisstjórnarinnar og það sem vakti furðu mína og var spurningin til hæstv. ráðherra er hvernig Flokkur fólksins getur tekið undir malbiksstefnu Viðreisnar og Samfylkingar, að draga úr sjálfstæði og krafti landsbyggðarinnar með því að taka öll meginstörf ríkisins af landsbyggðinni. Ég taldi upp 45, við gætum örugglega gengið lengra. Það er þetta sem ég var að spyrja hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra um. Ég veit vel að hæstv. ráðherra er búin að vera býsna ánægð með breytingarnar á almannatryggingakerfinu, sem er frábær breyting frá því sem ráðherrann var þegar hún var formaður Flokks fólksins í stjórnarandstöðu og vildi ekki samþykkja þessar breytingar. (Forseti hringir.) Mér finnst það líka frábært að fólk geti skipt um skoðun. En ég skil ekki þessa umbreytingu á Flokki fólksins þar sem ég hef ekki skynjað annað en að hjarta þeirra slái með landsbyggðinni. (Forseti hringir.) En ég sé það ekki í áherslum ríkisstjórnarinnar og það er það sem ég er að spyrja hæstv. ráðherra um sem einn af oddvitum ríkisstjórnarinnar.