lágmarksgreiðslur fæðingarorlofs.
Virðulegi forseti. Síðasta sumar setti hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra reglugerð um hækkun fæðingarstyrks og lágmarksgreiðslur fæðingarorlofs. Samkvæmt lögum um fæðingarorlof er hins vegar kveðið á um að eingöngu sé heimilt að endurskoða fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og fæðingarstyrk við afgreiðslu fjárlaga ár hvert. Eingöngu er hægt að breyta þeim fjárhæðum á öðrum tíma en við afgreiðslu fjárlaga ef verulegar breytingar verða á launaþróun og þjóðhagsforsendum frá afgreiðslu fjárlaga. Því vil ég spyrja hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra: Hvaða verulegu breytingar urðu á launaþróun og þjóðhagsforsendum frá afgreiðslu fjárlaga sem voru kveikjan að reglugerðarbreytingunni í júlí síðastliðnum?