lágmarksgreiðslur fæðingarorlofs.
Frú forseti. Ég þakka hv. hávaxna þingmanni fyrir góða fyrirspurn, það rétt sést í hökuna á manni hérna. Staðan var sú í fyrrasumar að reglugerðarheimild var breytt þannig að ég hafði heimild til þess að setja þessa reglugerð, það var bara ekki uppfært í lagasafninu og virðist vera sem ekki hafi verið gert enn. Hins vegar er það svo að það er gert ráð fyrir þessum fjármunum í fjárlögum nýrrar ríkisstjórnar og það er gert ráð fyrir þessum fjármunum í fjármálaáætlun til næstu fimm ára. Ég myndi segja að það væri bara gleðilegt og frábært að við skulum vera að taka utan um barnafjölskyldur. En ég skil vel áhyggjur hv. þingmanns ef hann heldur að við séum að ganga á svig við gildandi rétt, löggjafinn sjálfur. En ég tel svo ekki vera.