157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

lágmarksgreiðslur fæðingarorlofs.

[10:51]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég verð hins vegar að hryggja hana með því að ég tel það vera nokkuð skýrt að breytingin sem gerð var á lögunum í sumar sneri í raun bara að því að heimilt væri að breyta fjárhæðunum á öðrum tíma en um áramót en ekki þeim efnislegu skilyrðum sem þurfa að vera til staðar, þ.e. að það hafi orðið veruleg breyting á launaþróun eða þjóðhagsforsendum. Þetta kemur skýrt fram í greinargerð með frumvarpinu í sumar.

Af því að ég hef smástund hérna langar mig kannski til að bæta við einni lítilli spurningu um það af hverju hæstv. ráðherra hafi ekki getað staðið með tillögu Sjálfstæðisflokksins um að hækkanir á mánaðarlegum greiðslum taki til allra foreldra í fæðingarorlofi en ekki bara sumra eins og raunin er.