lágmarksgreiðslur fæðingarorlofs.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Í upphafi skal endinn skoða og ég veit ekki betur en einmitt að núna liggi fyrir Alþingi sú tillaga að fæðingarorlofið muni ná til allra, ekki bara sumra. Það liggur fyrir. Hvað lýtur að fyrri hluta fyrirspurnar hv. þingmanns, sem er mjög lagatæknilegs eðlis, þá mun ég náttúrlega leggja hana fyrir sérfræðingana í mínu ráðuneyti. Ég tel enn að það sé ekki á nokkurn hátt sem við erum að fara á svig við gildandi rétt. En ég þakka hv. þingmanni fyrir ábendinguna því að ef við erum eitthvað að sviga á milli þess sem löglegt er og ekki þá er það náttúrlega ekki liðið. Ég þakka hv. þingmanni fyrir.