olíuleit við Ísland.
Virðulegur forseti. Ég harma að ekki fáist skýrt svar frá hæstv. ráðherra um hvaða niðurstöðu hann myndi beita sér fyrir í þessu máli, því að sannarlega skiptir afstaða hæstv. ráðherra máli. Hann ber ábyrgð á afstöðu stjórnvalda í málinu. Auðvitað skiptir lykilmáli gagnvart aðilum sem hefðu mögulega í hyggju að fara af stað í þetta hver afstaða stjórnvalda er. Afstaða stjórnvalda er neikvæð, það virðist vera. Hún er þá afgerandi neikvæð. Ég velti því fyrir mér hvers vegna hæstv. loftslagsráðherra getur ekki sagt það skýrt hér í pontu hvernig hann myndi beita sér í þessu máli. Þegar kemur að því að hverju Ísland á að einbeita sér í orkumálum er endurnýjanlega orkan sannarlega okkar sérstaða. Það er sannarlega satt. Hins vegar mun olía verða notuð í heiminum næstu áratugi. Við getum ráðið hvort við ætlum að taka þátt í að framleiða hana og hagnast, mögulega, hugsanlega, ævintýralega á því eða eftirláta það Íran, Sádi-Arabíu, Bandaríkjunum, Rússum. En það er þá pólitíska ákvörðunin, það er varla gert á grunni loftslagsmála, vegna þess að þetta raunverulega verður notað. Við getum tryggt (Forseti hringir.) okkar orkuöryggi, við getum tryggt okkar efnahagslega öryggi með því að gera þetta. Það þarf þá að koma skýrt frá hæstv. ráðherra hvers vegna honum hugnast þetta ekki, vegna þess að það er ekki bara vonin um að það gerist eða ekki. Það þarf að skoða það, það þarf að kanna það. Við getum ekki vitað það núna. En hvers vegna hugnast hæstv. ráðherra þetta þá ekki? Er það þá bara á grunni loftslagssjónarmiða?