157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

umræða um bókun 35.

[11:17]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Nú er það auðvitað þannig, eins og hæstv. forseti var að fara hér yfir, að það er búið að liggja fyrir alla vikuna að bókun 35 yrði á dagskrá í dag. Það var líka ákveðið af hálfu ríkisstjórnarflokkanna að koma snemma með það mál inn einmitt vegna þess að vitað var að það tæki tíma í vinnslu þingsins. Andstaða Miðflokksins er þekkt í málinu. Það liggur hins vegar fyrir að það er yfirgnæfandi meirihlutastuðningur fyrir málinu en það núllar hins vegar ekki út þörf þingsins fyrir að ræða málið og þess vegna kemur það tiltölulega snemma inn á þingvetrinum.

Varðandi það að hér sé verið að fara fram á að þingmál sem voru rædd talsvert mikið á síðasta þingvetri líka fari hraðar í gegn þá var það einmitt oft notað sem röksemd þegar var verið að ræða um þinglok í vor og sumar að við myndum geta byggt á þeirri vinnu sem þegar hafði farið fram í þeim þingmálum. Þannig að það er auðvitað ekkert óeðlilegt við það að leggja svolitla áherslu á að þau mál (Forseti hringir.) hafi góðan gang hér í þinginu. Annars árétta ég það sem ég hef áður sagt: Það er okkur ekki til sóma ef við náum ekki einu sinni að klára mál sem við erum öll sammála um.