umræða um bókun 35.
Frú forseti. Í þessum ræðustóli hefur stjórnarliðum orðið tíðrætt um það, bæði á síðasta þingi og það hefur þó nokkrum sinnum verið nefnt núna á þessu þingi, og ég tek það fram að ég er sammála þeim, að það er fjöldi góðra mála sem bíður afgreiðslu og sem ég tel að sé talsvert mikil sátt um og eiga það sameiginlegt að mati okkar flestra kannski hér inni að þoli litla sem enga bið. Um bókun 35 hins vegar er öðru til að dreifa. Hún þolir alveg bið. Hún hefur beðið í yfir 30 ár og er okkur algerlega að skaðlausu þó að hún bíði í vikur, mánuði, jafnvel bara fram til kosninga um áframhaldandi aðildar- og aðlögunarviðræður að ESB. Það skiptir bara engu máli. Tjónið yrði ekkert. Eitt fýlubréf fengjum við kannski að utan sem færi auðvitað fyrir brjóstið á núverandi hæstv. utanríkisráðherra. En það truflar þjóðlífið lítið þótt hún missi svefn eina kvöldstund.(Gripið fram í: Spurðu Önnu Bryndísi …(Gripið fram í.))
(Forseti (ÞSv): Forseti biður um hljóð í þingsal.)