umræða um bókun 35.
Forseti. Já, það kann að vera að ég hafi tekið ansi sterkt til orða og ef það hefur farið fyrir brjóstið á einhverjum þá biðst ég velvirðingar á því. En það bara situr í mér kvíði fyrir þessari umræðu sem er að koma núna í bókun 35. Það er ekkert umræðan sem var, með leyfi forseta, geðveikisleg. Það var þetta málþóf sem var bara orðið verulega lýjandi og erfitt fyrir marga — og líka almenning. Svo að ég sé hreinskilin þá er þessi umræða um bókun 35 að hefjast núna og það setur að manni ugg um að það verði eitthvað sambærilegt. Það er kannski bara mannlegt, ég veit það ekki. Ég skal alveg viðurkenna að ég tók sterkt til orða áðan og ég biðst velvirðingar á því að hafa gert það. Það var ekki meining mín að ganga neitt langt í þeim efnum. Svona er það nú stundum. Meira að segja sálfræðingar geta verið í uppnámi yfir hlutunum og kannski misst út úr sér einstaka sterkt orð. Þá er bara beðist afsökunar á því og ég geri það hér með.