157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

umræða um bókun 35.

[11:23]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég er auðvitað enn þá nýr hér en tek eftir þessu ákalli um að fá útprentaðar gamlar ræður, og ekkert mjög gamlar, bara síðan í vor, um bókun 35 og get alveg skilið það. Ég vona þó að í því felist ekki sú hugsun að fara að endurflytja allar ræðurnar sem voru fluttar í vor vegna þess að þær eru okkur auðvitað enn þá greyptar í fersku minni. Ég beini því góðlátlega til þingmanna að vísa bara í eldri ræður sem eru þegar skráðar tryggilega á spjöld sögunnar.

Hins vegar finnst mér þessi umræða alveg gefa tilefni til að gefa þessari umræðu pláss og það sé ekkert að vanbúnaði að lengja þingfundinn í dag til að rúma hana. Megi hins vegar skilja orð hv. 12. þm. Suðvest., Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, þannig að það að hafa bókun 35 á dagskrá kalli á að fresta öllum öðrum málum vegna þess að það eigi að ræða þetta það lengi þá held ég að þingheimur hljóti að vera dálítið hugsi yfir því vegna þess að skipulag þingstarfa byggir á því að afmarka hverju (Forseti hringir.) máli pláss og það á ekki að þurfa að vera dramatískt. En það er hins vegar verkefni þingsins að tryggja að við verðum ekki (Forseti hringir.) í einhverju ástandi eins og í vor þar sem dagskrá riðlast vegna þess að einstaka mál þurfa umræðu.