157. löggjafarþing — 8. fundur,  18. sept. 2025.

umræða um bókun 35.

[11:25]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Svo ég svari nú hv. þm. Degi B. Eggertssyni: Þetta er nú ekkert flóknara en svo að það eru bara ekki tvö mál í gangi á sama tíma. Það er það sem ég sagði. Það eru ekki tvö mál í gangi á sama tíma. Hins vegar er þetta mál sem liggur fyrir að er ekki samstaða um. Það er fullt af málum sem er samstaða um og þá er kannski eðlilegra og líklegra að þau fari hraðar í gegn og minni umræða verði um þau. Þannig að ef það er einhver misskilningur þá liggur það fyrir.