umræða um bókun 35.
Frú forseti. Það er auðvitað gott að heyra að ræðurnar séu tilbúnar úr talgreini og ég vil fullvissa hv. þm. Dag B. Eggertsson um að sá sem hér stendur er ekki að fara að endurflytja sínar ræður. En að sjálfsögðu vinna menn punkta úr fyrri ræðum og ræðum annarra þingmanna o.s.frv. eins og hv. þingmaður hlýtur að þekkja. Hann þarf ekki óttast það.
Ég ætlaði að koma að Flokki fólksins sem fyrir síðustu kosningar — það er minna en ár síðan — lýsti algjörri andstöðu við bókun 35, a.m.k. einhverjir þingmanna flokksins. Hv. þm. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir lýsti því hér yfir, og dró sín orð til baka einhverju leyti, að það væri lýjandi og erfitt fyrir marga að hlusta á þessa umræðu um bókun 35. Það er nú bara þannig í pólitíkinni, hv. þingmaður, að menn verða stundum að þola það að fólk á annarri skoðun en hv. þingmaður (Forseti hringir.) komi hér upp í pontu og hafi jafnvel mörg orð um ýmis mál sem hún er kannski ekki sammála. Menn verða bara að þola það.