framlög til endurhæfingar og þjónustusamningur við Heilsustofnun NLFÍ.
Frú forseti. Ég þakka hv. 2. þm. Suðurk. fyrir spurningarnar og athugasemdirnar og ég tek af alhug undir með henni að endurhæfing er gríðarlega mikilvæg og skilar sér margfalt til samfélagsins. Það er hins vegar þannig að það hefur ekki verið raunvöxtur í undanförnum fjárlögum og þessi þjónusta hefur sætt aðhaldi. Ég hef talað fyrir því að svo megi hlutirnir ekki vera og held því áfram. En það sem ég tók mjög fljótt eftir þegar ég kom inn í heilbrigðisráðuneytið í upphafi ársins er að það er ekki nægilega vel skilgreint hvað heilbrigðistengd endurhæfing er. Þar setti ég þegar í stað af stað vinnu um að skilgreina það og svokölluð hvítbókarvinna er í gangi og hún verður kynnt á heilbrigðisþingi sem helgað verður endurhæfingu. Það er alveg rétt að það er gagnrýni á hvernig fjármunum hefur verið útdeilt til mismunandi stofnana og Náttúrulækningafélagið hefur gagnrýnt það. Þetta er ekkert nýtt, þetta er búið að vera til margra ára en auðvitað þarf að laga það. En síðan þegar kemur að Ljósinu þá er ekki rétt eða sanngjarnt að tala um að það sé niðurskurður um 200 milljónir því að hið rétta er að það var hv. fjárlaganefnd sem veitti Ljósinu einskiptisfjárveitingu upp á 195 milljónir. Síðan hefur vissulega komið fram beiðni um meira fjármagn og að því er unnið. Það eru auðvitað Sjúkratryggingar Íslands sem kaupa heilbrigðisþjónustu fyrir hönd okkar allra og þar er unnið að málum um að ná saman um hvernig þjónustunni skuli háttað og hvernig hún skuli fjármögnuð.