157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

framlög til endurhæfingar og þjónustusamningur við Heilsustofnun NLFÍ .

[15:06]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég vil beina sjónum að kostnaði þess að gera ekki neitt. Endurhæfing skilar fólki hraðar aftur til vinnu, dregur úr veikindakostnaði og léttir á bráðaþjónustu. Þegar ríkið heldur endurhæfingu í óvissu og fjármagnar ekki endurhæfingarstarf er það ekki sparnaður heldur seinkun á bata og hærri heildarkostnaður síðar. Sama gildir um sálfræðiþjónustu sem enn er ekki niðurgreidd þrátt fyrir gefin loforð. Þetta er einföld hagkvæmnisregla. Fjárfesting í endurhæfingu sparar síðar. Hér rekst faglegt mat á pólitíska forgangsröðun. Sjúkratryggingar hafa bent á að greiðslur standi ekki undir raunkostnaði en samt er haldið í ástand þar sem þjónustan hangir á bláþræði.

Þess vegna spyr ég ráðherra aftur: Ætlar ráðherra að axla forystu og snúa þessum ráðahag við með skýrri ákvörðun um vernd endurhæfingar og stuðnings, þar á meðal Ljóssins og Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði? Eða er afstaða ríkisstjórnarinnar sú (Forseti hringir.) að láta sjúklinga, fjölskyldur og vinnumarkaðinn greiða reikninginn fyrir forgangsröðun sem einfaldlega stenst enga skoðun?