samningar við sérfræðinga á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Virðulegur forseti. Í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins 18. september síðastliðinn kom fram að það væri búið að segja upp öllum samningum við alla sérfræðinga á Sjúkrahúsinu á Akureyri sem eru með svokallaða ferliverkasamninga. Samkvæmt mínum heimildum eru þetta 13 sérfræðingar sem hér er um að ræða. Það gefur að skilja og samkvæmt mínum heimildum setur þetta margs konar þjónustu við sjúklinga á Sjúkrahúsinu á Akureyri í uppnám, t.d. í krabbameinslyfjameðferðum. Um 10–15% af allri krabbameinslyfjameðferð á Íslandi er sinnt á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Það er mér til efs að það væri hægt að færa þá þjónustu á Landspítalann, svo ekki sé talað um kostnað og óþægindi fyrir sjúklingana sjálfa. Því spyr ég hæstv. heilbrigðisráðherra: Er það virkilega rétt að heilbrigðisráðuneytið hafi farið fram á það að öllum þessum samningum yrði sagt upp með þriggja mánaða uppsagnarfyrirvara?