samningar við sérfræðinga á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir spurninguna. Hið rétta er að þessir samningar, sem kallaðir eru ferliverkasamningar, standast ekki lög og geta haft afleiðingar fyrir hvort tveggja þá sem veita þjónustuna og þá sem kaupa hana. Þar getur komið til endurákvörðun skattyfirvalda o.s.frv. Þetta mál á sér margra ára forsögu og þessum ferliverkum var hætt á Landspítala upp úr síðustu aldamótum. Í ágúst á síðasta ári sendi fjármála- og efnahagsráðuneytið, þáverandi ráðherra, dreifibréf til allra forstöðumanna ríkisstofnana þar sem fjallað var um þessa svokölluðu gerviverktöku og bent á að hún væri hvorugum til hagsbóta. Heilbrigðisráðuneytið fylgdi á eftir með bréfi í mars og áréttaði þennan mun sem er á launþegasambandi og sambandi við verktaka. SAk er því búið að hafa langan tíma til að undirbúa sig og ráðuneytið hefur ekki sagt að öllum skyldi sagt upp á einu bretti heldur að það þyrfti að fara yfir þessa samninga þannig að þeir yrðu löglegir og að svokölluð gerviverktaka eigi auðvitað að heyra sögunni til. Það er ekki loku skotið fyrir verktöku en hún á samt að heyra til undantekninga og fyrirmæli ráðuneytisins væru að þetta yrði gert í áföngum og að mögulega þurfi að leita fjölbreyttra lausna. Það eru fyrirmæli ráðuneytisins. Mér er kunnugt um að forstjóri SAk vinni að því að reyna að leiða þetta mál í jörðu og auðvitað er mikil áhersla á það lögð af hálfu heilbrigðisráðuneytisins að ekki verði þjónusturof við sjúklinga.