samningar við sérfræðinga á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir hennar svar. Það er náttúrlega þannig að þessi ferliverkasamningar voru gerðir í góðri trú og eru gerðir af því að það hefur reynst erfitt að fá fastráðna lækna á m.a. Sjúkrahúsið á Akureyri sem og aðrar heilbrigðisstofnanir úti á landi. Það er ekkert nýtt vandamál. Það er ekki vandamál sem búið er að leysa heldur og þess vegna eru þessir samningar m.a. við þessa 13 sérfræðinga. Hér hlýtur aðalmálið hjá okkur að vera það að tryggja samfellu og öryggi í þjónustu við sjúklingana. Það hlýtur að vera okkar forgangsmál og því velti ég fyrir mér, þegar þessi staða er komin upp og við sjáum fram á að það er ekki hægt að fastráða þessa sérfræðinga, það eru litlar líkur á því næstu þrjá mánuðina: Hvernig ætlar ráðuneytið að bregðast við þeirri stöðu þannig að það sé samfella og öryggi í þjónustu við sjúklinga sem hafa nýtt sér þessa þjónustu hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri?