157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

afstaða félags- og húsnæðismálaráðherra til inngöngu í Evrópusambandið.

[15:23]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir afar skemmtilega fyrirspurn. Lýðræðið virðist vera í hávegum haft hjá hv. þingmanni og það er svo sannarlega líka hér hjá ríkisstjórninni þar sem við höfum allan tímann ætlað að setja það í hendurnar á þjóðinni að taka ákvörðun um það hvort við höldum áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið eða tökum upp aðildarviðræður eftir því hvernig lögspekingar ákveða, hvort við séum enn þá bara að geyma þetta niðri í skúffu og höfum aldrei sagt okkur frá því eða hvort við byrjuðum alveg upp á nýtt.

Það liggur algerlega fyrir að Flokkur fólksins hefur aldrei verið inni á þeirri línu að við eigum að ganga í Evrópusambandið, svo það sé líka sagt. Svo var það ákveðið við stjórnarmyndunarborðið í desember 2024 af okkur sem leiðum þessa ríkisstjórn að það yrði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla eigi síðar en árið 2027. Ég hef ekki heyrt um neinar aðrar hugmyndir hvað það varðar og það er sá skilningur sem ég legg í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu. En ég er alveg skýr um það að það skiptir náttúrlega öllu máli að við séum í góðu sambandi við Evrópu og okkar næstu nágranna. Evrópusambandið skiptir okkur miklu máli, sérstaklega sú stoð sem við erum þar aðilar að í gegnum EES-samninginn okkar, samningurinn um hið Evrópska efnahagssvæðið, sem er hliðið okkar inn á innri markaðinn og Evrópu og er náttúrlega grundvallarsamningur fyrir okkar samfélag. En það skal líka sagt að hér hefur hagvöxtur verið hvað mestur og stöðugri og meiri á Íslandi heldur en í löndunum í kringum okkur og löndum sem eru í Evrópusambandinu þannig að við eigum sannarlega ekkert um sárt að binda með því að vera bara við sjálf. Hins vegar er spurningin alltaf um það hvað við eigum að gera við gjaldmiðilinn okkar og þá þykir mér afskaplega spennandi að geta tjáð að við munum núna vera að skoða kosti og galla (Forseti hringir.) íslensku krónunnar með tilliti til hagsmuna samfélagsins.