afstaða félags- og húsnæðismálaráðherra til inngöngu í Evrópusambandið.
Virðulegur forseti. Það auðvitað hljómar ætíð vel að hæstv. ríkisstjórn vilji leyfa þjóðinni að ráða. Það eru mörg önnur mál sem mjög athyglisvert væri að sjá hvernig færu í þjóðaratkvæðagreiðslu, hvort við ættum að taka á móti fleiri flóttamönnum eða fjármagna stríðið í Úkraínu eða leyfa fólki að ráða því hvernig það ráðstafar útvarpsgjaldinu sínu og annað eins. Þannig að það er margt til í því, en þetta er valið.
Hæstv. ráðherra talar um EES-samninginn. Í sambandi við hann er nú mjög til umræðu í þinginu bókun 35, sem við höfum furðað okkur á að sé verið að koma núna í gegn á tímum þar sem Evrópusambandið er að hóta okkur ofurtollum og öðru eins og hvort í raun og veru sé einhver bragur á því af hálfu íslenskra stjórnvalda að gera þetta núna. Hæstv. ráðherra talaði um þetta í byrjun árs 2024 og fór mjög hörðum orðum um bókun 35 á þeim tíma, sagði m.a. að þar væru stjórnvöld að leggjast kylliflöt og leyfa Brussel að valta yfir okkur. Stendur hæstv. ráðherra, undir (Forseti hringir.) núverandi kringumstæðum, að baki því að bókun 35 fari óbreytt í gegnum þingið eins og hún er núna og mun hún greiða henni atkvæði eða (Forseti hringir.) er hún sama sinnis og hún var í upphafi árs 2024?