afstaða félags- og húsnæðismálaráðherra til inngöngu í Evrópusambandið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari fyrirspurn sem er náttúrlega alveg stórkostleg fyrirspurn. Þá fæ ég tækifæri til að segja að ég er gjörsamlega algjörlega búin að skipta um skoðun hvað lýtur að bókun 35, enda var ég þar í villu og svíma og hafði ekki hugmynd um að bæði Neytendasamtökin og VR væru í málaferli gegn íslenskum bönkum sem fara eins og eldur um akur um samfélagið og alla þá sem skulda krónu. Það þekkist hvergi á byggðu bóli nema hér að hægt sé að greiða 400.000 kr. í húsnæðislánið sitt og þar af séu 395.000 kr. í vexti. Nú skilst mér að búið sé að taka til hliðar milljarða af þessum bönkum sem bíða í skelfingu og milli vonar og ótta um það hvernig Hæstiréttur muni dæma í þessum málum, hvernig bankarnir hafa verið að fara með sína lántakendur. Ef við verðum búin að innleiða bókun 35, sem í rauninni átti allan tímann að vera en var ranglega innleidd, þá eru allar líkur á því að Hæstiréttur geti dæmt neytendum í vil og bankarnir þurfi að snara út þessum milljörðum sínum. Ef ekki — þá því miður. Þannig að já, hv. þingmaður, ég hef sannarlega skipt um skoðun og kallað til alls konar sérfræðinga sem hafa fengið mig til að sjá ljósið.