157. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[15:29]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Með frumvarpinu er lagt til að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra verði lögfestur í heild sinni. Markmið lögfestingar er að auka réttaráhrif samningsins hér á landi, tryggja að fatlað fólk njóti til fulls allra mannréttinda og að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli fötlunar.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þann 13. desember 2006. Markmið hans er að efla, verja og tryggja full og jöfn mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk til jafns á við aðra. — Þarna vil ég stinga inn í: Við erum eingöngu að tala um til jafns á við aðra. Þessi samningur er í engu að kalla á einhver aukin réttindi umfram það sem almennt er talið eðlilegt í þessu samfélagi.

Í samningnum má finna fjölmargar greinar sem miða að því að tryggja að fatlað fólk njóti í reynd allra mannréttinda sinna og gerir því kleift að taka fullan og virkan þátt í samfélaginu. Samkvæmt samningnum þá teljast til fatlaðs fólks m.a. þeir sem eru með langvarandi líkamlega, andlega og vitsmunalega skerðingu eða skerta skynjun og sem verða fyrir ýmiss konar hindrunum sem geta komið í veg fyrir fulla og árangursríka samfélagsþátttöku til jafns á við aðra. Samningurinn á því við um stóran og fjölbreyttan hóp fólks. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks felur almennt ekki í sér ný efnisréttindi heldur tryggir réttindi sem nú þegar njóta verndar í öðrum mannréttindasamningum. Þar ætla ég að ítreka að samningurinn felur almennt ekki í sér ný efnisréttindi heldur tryggir réttindi sem nú þegar njóta verndar í öðrum mannréttindasamningum. En þó svo að mannréttindasamningar eigi að tryggja réttindi okkar allra þá hefur fatlað fólk í gegnum tíðina verið líklegra til að njóta ekki mannréttinda sinna í raun og veru auk þess að eiga erfiðara með að sækja rétt sinn. Var því talið nauðsynlegt að útfæra réttindi fatlaðs fólks í sérstökum mannréttindasamningi sem miðar m.a. að því að tryggja jafnrétti, koma í veg fyrir mismunun á grundvelli fötlunar, stuðla að inngildingu, tryggja virka þátttöku fatlaðs fólks og fjarlægja hindranir sem fatlað fólk mætir í samfélaginu.

Virðulegi forseti. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks markaði mikil tímamót í mannréttindabaráttu fatlaðra. Auk þess að skilgreina sjálfsögð réttindi þeirra þá byggir hann á þeirri hugmyndafræði að fötlun sé hluti af mannlegum fjölbreytileika fremur en frávik. Í formálsorðum samningsins kemur fram að fötlun sé afleiðing af samspili milli einstaklinga með skerðingar annars vegar og hins vegar umhverfis og viðhorfa sem hindra fulla og árangursríka samfélagsþátttöku þeirra til jafns á við aðra.

Ísland undirritaði samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2007 og fullgilti hann árið 2016. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Flokks fólksins, Samfylkingar og Viðreisnar kemur fram að lögfesta skuli samninginn. Markmiðið með lögfestingunni er að auka réttaráhrif samningsins hér á landi, tryggja að fatlað fólk njóti til fulls allra mannréttinda og koma í veg fyrir mismunun á grundvelli fötlunar.

Frá fullgildingu samningsins þá hefur hann haft umtalsverð áhrif á lagasetningu og stefnumótun hér á landi. Samningurinn í heild sinni hefur þó ekki lagalegt gildi en með frumvarpi þessu er lagt til að hann verði lögfestur og þannig tryggt að hægt verði að beita honum sem fullgildri réttarheimild fyrir dómstólum og öðrum úrskurðaraðilum. Með því er leitast við að auka réttaráhrif samningsins og styrkja mannréttindi fatlaðs fólks á Íslandi. Má í því sambandi benda á að lögfesting mannréttindasáttmála Evrópu og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hefur styrkt stöðu þeirra umtalsvert og aukið vægi þeirra í íslenskri réttarframkvæmd. Til viðbótar við aukin réttaráhrif felur lögfestingin í sér að við allar breytingar á gildandi lögum og setningu nýrra laga verði tekið mið af samningnum.

Eftirlit með framkvæmd samningsins er í höndum nefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks en samningurinn kveður einnig á um að til staðar þurfi að vera sjálfstæð innlend mannréttindastofnun sem hefur eftirlit með honum. Mannréttindastofnun Íslands, sem hóf störf 1. maí síðastliðinn, mun fara með það hlutverk. Með fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 þá skuldbatt íslenska ríkið sig til að koma þeim réttindum sem kveðið er á um í samningnum í framkvæmd. Eins og fram hefur komið hafa þegar verið gerðar ýmsar lagabreytingar og ný lög sett sem miða að því að innleiða samninginn og aðlaga íslenska löggjöf að honum. Á undanförnum árum hefur einnig verið unnið markvisst að því að koma réttindum samkvæmt samningnum í framkvæmd, m.a. með framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks til ársins 2027. Áætlunin byggir á þeirri framtíðarsýn og þeim meginreglum sem fram koma í samningnum og er henni ætlað að vera hluti af heildstæðri stefnumótun þegar kemur að réttindum fatlaðs fólks.

Í áætluninni má finna 60 aðgerðir sem miða að því að uppfylla greinar samningsins. Jafnrétti og bann við mismunun eru, eins og áður hefur komið fram, hornsteinn þeirra réttinda sem samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks kveður á um. Jafnrétti er þannig rauði þráðurinn í gegnum allar greinar samningsins og mun lögfesting hans hafa jákvæð áhrif á réttindi alls fatlaðs fólks hér á landi óháð aldri, uppruna eða búsetu. Samningurinn tryggir fötluðu fólki víðtæk mannréttindi, borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi, réttindi sem ófötluðu fólki þykja algjörlega sjálfsögð.

Virðulegi forseti. Með frumvarpi þessu er lagt til að alþjóðlegum mannréttindasamningur sem Ísland er aðili að verði lögfestur í heild sinni. Kallað hefur verið eftir því lengi að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra verði lögfestur hér á landi. Samningurinn felur ekki í sér ný réttindi fyrir fatlað fólk heldur miðar að því að fatlað fólk geti notið mannréttinda sinna. Með lögfestingu samningsins stígum við mikilvægt skref í átt að réttlæti og jafnrétti hér á landi.

Virðulegi forseti. Að lokinni umræðu þá — ég ætla nú ekki að gera þetta alveg strax, ég hef kannski einhvern örlítið meiri tíma. Ég hef fengið mjög margar fyrirspurnir, eða ekki ég, ég hef heyrt það bæði hér í þinginu og svo náttúrlega hef ég líka fengið fyrirspurnir þar sem hv. þingmenn hafa áhyggjur af því hversu gríðarlegur kostnaður myndi falla á sveitarfélögin við lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ég hef gjarnan sagt að ég vildi síður standa hér til að verja tilverurétt fatlaðra í þessu ríka landi. En staðreyndin er sú að HLH-ráðgjöf vann mat á áhrifum lögfestingarinnar á fjárhag sveitarfélaganna fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er nú það sem hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir spurði hæstv. fjármálaráðherra að áðan og ég var nú eiginlega að vona að hún ætlaði kannski að spyrja mig líka, en þá er ég bara búin að svara henni fyrir fram. Ég er nefnilega farin að lesa hugsanir. En þær forsendur sem voru notaðar og lagðar til grundvallar matinu hjá HLH-ráðgjöf virðast að miklu leyti þær sömu og í skýrslu starfshóps um kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk. Í niðurstöðum HLH-ráðgjafar og mati á áhrifum samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra þá vegur þar þyngst núverandi biðlisti eftir sértækum búsetuúrræðum á grundvelli laga nr. 38/2018. Sem sagt, sá kostnaður sem er sagður leggjast á sveitarfélögin vegna lögfestingar samnings Sameinuðu þjóðanna er áætlaður kostnaður vegna atriða sem þegar hafa verið lögfest í lögum nr. 38/2018. Í gangi er samtal í Jónsmessunefnd til að tryggja fjármögnun þessara úrræða með sanngjörnum hætti svo ég bind vonir við að sátt náist þar um milli ríkis og sveitarfélaga þannig að brátt verði hægt að ráðast í þessar aðgerðir að fullu, húsnæðisaðgerðir, að koma fólkinu okkar í viðunandi skjól, enda eru þær aðgerðir afar mikilvægar, svo sem uppbygging íbúðakjarna. En ég ítreka að þessi atriði eru ekki útlistuð í þessu frumvarpi mínu heldur koma þau til með lögum frá árinu 2018.

Ég get ekki annað sagt en að ég hlakka mikið til þegar þessi samningur verður lögfestur. Ég hlakka mikið til þegar fatlað fólk getur lifað í þessu samfélagi eins og það sé raunverulega að lifa og búa í réttarríki sem veitir öllum jafnan aðgang, gefur okkur jafnrétti, gefur okkur jafnræði og á líka að gefa okkur kost á því að leita okkur óvilhallra dómstóla til að fjalla um mál sem okkur varðar ef við teljum að á okkur sé brotið. Það er algerlega hafið yfir allan vafa í mínum huga og allra þeirra sem standa að baki þessari löggjöf, sem vonandi verður orðin að lögum hér innan skamms, því ég finn mikinn hug hjá hv. þingmönnum og skilning á málinu, hef líka tekið til mín þær áhyggjur sem eru hafðar af ófyrirséðum kostnaði. En eins og ég segi, ég tel að það sé ekki hægt að meta endalaust krónur og aura þegar við erum að reyna að tryggja mannréttindi þjóðfélagshóps sem hefur venjulega verið settur hjá garði og átt erfitt uppdráttar í allri sinni tilveru vegna þeirrar fötlunar sem hann hefur fengið oftar en ekki bara í vöggugjöf.

Forseti. Að lokum mun málið rata til hv. velferðarnefndar sem ég var svo lánsöm að fá að kynna samninginn fyrir ekki alls fyrir löngu.